Skilaréttur
Við viljum að þér líði vel í ERA fötunum þínum. Ef stærðin passar ekki eða varan er ekki alveg eins og þú sást fyrir þér, þá er lítið mál að skila henni eða skipta.
Skilaréttur
- Þú hefur 14 daga frá því að þú færð vöruna til að skila henni eða skipta.
- Varan þarf að vera ónotuð og í upprunalegum umbúðum.
- Verðmiðinn þarf enn að vera á vörunni.
- Pöntunarnúmer, kvittun eða skilamiði þarf að fylgja.
Svona skilar þú eða skiptir
Sendu okkur línu á erasport@erasport.is, hringdu í síma 857 2491 eða sendu skilaboð á Instagram (@erasportclothing) með pöntunarnúmerinu. Segðu okkur hvort þú viljir skipta um stærð eða lit, fá innleggsnótu eða fá endurgreitt. Þú getur líka komið með vöruna til okkar í Holtasmára 1, 201 Kópavogi.
Endurgreiðsla eða innleggsnóta
Þegar við höfum tekið á móti vörunni og farið yfir hana endurgreiðum við inn á sama greiðslumáta og notaður var við kaupin. Ef þú vilt frekar getur þú fengið innleggsnótu sem þú notar í vefversluninni eða í verslun okkar.
Sendingarkostnaður
Kaupandi greiðir sendingarkostnað þegar vöru er skilað eða skipt og hann fæst ekki endurgreiddur. Undantekning er ef varan er gölluð eða ef við sendum ranga vöru, þá greiðum við sendinguna.
Gjafir
Fékkstu ERA flík að gjöf? Þá getur þú skipt henni eða fengið innleggsnótu innan 14 daga frá afhendingu með skilamiðanum sem fylgir gjafapöntunum, eða með því að gefa upp pöntunarnúmerið.
Gallaðar vörur
Ef vara reynist gölluð biðjum við þig að hafa samband sem fyrst og senda okkur mynd af gallanum. Við bætum úr því með nýrri vöru eða endurgreiðslu, í samræmi við lög um neytendakaup nr. 48/2003.